
Fréttastofan náði tali af eina Íslendingnum sem ætlar að kjósa með IceSave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um málið. Hann vill ekki láta nafn síns getið, en hann heitir Sigurvin Ragnarsson og býr á Ásvallagötu 48, 101 Reykjavík.
Kjósandinn segist vera hundleiður á þessari neikvæðni í Íslendingum.
"Það er alveg sama hvað er lagt til, allir segja bara: Nei! Nei! Ég var bara orðinn leiður á þessu, þannig að ég ákvað að vera bara jákvæður. Þess vegna segi ég já." Kjósandinn, sem kýs að fara huldu höfði vegna neikvæðni samborgara sinna, segist gera sér grein fyrir því að þetta sé ekki vinsæl afstaða. "Já, fólk er alveg hart á því að segja nei í kosningunni, og ég hef orðið fyrir nokkru aðkasti á Facebook út af þessu," segir kjósandinn, sem stofnaði hóp til stuðnings Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem hann einn er meðlimur í.
"Ég skil bara ekki af hverju fólk þarf að vera svona neikvætt alltaf. Hvað myndi það eiginlega gera til að segja aðeins oftar Já?"
Aðspurður sagðist kjósandinn ekki hafa hugmynd um hvað þetta Icesave er.
















Jóhannes Jóhannes Jóhannesson hefur hrökklast frá völdum sem formaður saumaklúbbs Raufarhafnar - Saumahöfn, eins og hópurinn kallar sig. Jóhannes Jóhannes vill meina að hér séu galdrar að verki, en eftir aðgerðir Ásatrúarmanna gegn breskum og hollenskum stjórnvöldum hafa íslenskir galdrakarlar heldur betur sótt í sig veðrið.