
Eyvindur Karlsson er yfir 400 gamall og ber aldurinn óvenju illa. Enginn man nákvæmlega hvenær hann fæddist, og flestum er sama.
Eyvindur virðist hafa gengið í skóla, en veit samt sem áður nánast ekkert. Þó þykist hann eiga gögn sem sanna að hann hafi jafnvel lokið háskólaprófi í bókmenntafræði. Það gæti skýrt þetta, enda bókmenntafræðingar bara skör ofar í mannlegu genalauginni en amöbur.
Einhvern veginn tókst Eyvindi að ljúga sig inn á auglýsingastofu, ríkisútvarp og í það minnsta þrjár sjónvarpsstöðvar sem honum hefur tekist að gereyða. Hann hefur hlotið verðlaun fyrir versta sjónvarpsþátt heimsins og verður brátt verðlaunaður sem verst heppnaði einstaklingur vetrarbrautarinnar.
Í augnablikinu er Eyvindur að reyna að ala upp börn án teljandi skaða og í fullkominni óvissu um það hvors kyns hann er.