Helsta vitleysan

Þórhallur Þórhallsson

Þórhallur hefur einstaklega gaman af því að handfjatla ílanga hluti, eins og sést á þessari mynd.

Þórhallur Þórhallsson er fæddur á því herrans ári 1983 og er því 27 vetra.

Foreldrar Þórhalls heita Þórhallur og Rósa en þau eru skyld. Þórhalli gekk illa í leikskóla vegna þess og féll tvisvar í leirgerð og púsluspili. Að lokum komst hann þó upp úr leikskóla og hóf nám í Seljaskóla til 10 ára aldurs en fór þá í Ölduselsskóla þar sem hann var hataður af kennurum, samnemendum en mest þó af skólastjóranum. Þórhallur útskrifaðist með háði úr gagnfræðiskóla og gafst því upp á frekari menntun. Þórhallur vann ýmis niðurlægjandi störf og leið mikið fyrir það. Það var ekki fyrr en árið 2007 að Þórhallur fékk uppreisn æru og vann titilinn "Fyndnasti maður Íslands". Við það jókst sjálfsálit hans upp úr öllu valdi og er því í dag hrokafullur spjátrungur sem telur sig yfir alla hafinn. Ýmsir erlendir skemmtikraftar hafa orðið vísir að því að herma eftir Þórhalli og má þar helst nefna Jim Carrey og ... ja … eiginlega bara hann.

Þórhallur er lifandi mótsögn en stefnir á það í framtíðinni að verða lifandi goðsögn.

Neðsta vitleysan

Vottaðir vitleysingar

Bóka vitleysinga

Hægt er að fá þá Eyvind Karlsson og Þórhall Þórhallsson sem veislustjóra eða sem uppistandara við öll tækifæri (nema barnaafmæli) svo sem árshátíðir, skemmtikvöld hjá skólum eða fyrirtækjum og margt fleira. Hægt er að bóka þá saman eða í sitthvoru lagi. Einnig hafa þeir verið með uppistandsnámskeið í nokkrum framhaldsskólum við góðar undirtektir.

Til að bóka vitleysingana er hægt að senda e-mail á vitleysan(hjá)vitleysa.is


p.s erum einnig með nokkrar erótískar passamyndir af Eyvindi á góðum kjörum