Ágúst Þorkelsson starfsmaður hjá KFC vill að forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson eða ÓRG eins og Ágúst kallar hann, skrifi undir kvittun fyrir BBQ Twister sem forsetinn keypti sér í síðustu viku.
"Hann valsaði hérna bara inn eins og hann væri forsetinn eða eitthvað og pantaði sér BBQ Twister. Svo borgaði hann með korti merkt Glitni, hvað er málið með það? Þegar ég kom með kvittunina til hans svo að hann gæti skrifað undir þá var hann bara farinn á bak og burt. Hann kom nefnilega á hesti. Ég verð að segja, mér sárnaði" sagði Ágúst með tregablandinni röddu en þó með vott af karlmennsku.
Ágúst segist ætla að boða til mótmæla á Bessastöðum og krefjast þess að hann skrifi undir.
"Ég vona bara að sem flestir mæti, Órg á ekkert að komast upp með þetta" segir Ágúst að lokum
Bbq Twister sem aldrei var kvittað fyrir