Helsta vitleysan

Setti klósettsetuna niður

Sá óheyrði atburður átti sér stað þann 5 janúar 2010 að Samúel Bjarnason rafeindafræðingur setti klósettsetuna niður eftir að hafa farið á klósettið.

"Ég veit eiginlega ekki hvað kom yfir mig, ég var bara að pissa og þegar ég var búinn þá rakst ég í setuna þannig að hún datt niður og lokaðist. Þá mundi ég eftir hvað hún Lára konan mín er búin að kvarta yfir öll þessi ár þannig að ég lét hana bara vera lokaða áfram. Ég verð samt að viðurkenna að þetta var svolítið skrýtin tilfinning, en ég lét mig hafa það" sagði Samúel við fréttastofu Vitleysu.is

Eftir þetta ákvað Samúel að stofna hóp á facebook sem kallast "Ég er karlmaður og ég set klósettsetuna niður". Þegar þetta er skrifað þá er Samúel eini meðlimurinn í hópnum.
 
 
Hér sést að setan er komin niður

Neðsta vitleysan

Vottaðir vitleysingar

Bóka vitleysinga

Hægt er að fá þá Eyvind Karlsson og Þórhall Þórhallsson sem veislustjóra eða sem uppistandara við öll tækifæri (nema barnaafmæli) svo sem árshátíðir, skemmtikvöld hjá skólum eða fyrirtækjum og margt fleira. Hægt er að bóka þá saman eða í sitthvoru lagi. Einnig hafa þeir verið með uppistandsnámskeið í nokkrum framhaldsskólum við góðar undirtektir.

Til að bóka vitleysingana er hægt að senda e-mail á vitleysan(hjá)vitleysa.is


p.s erum einnig með nokkrar erótískar passamyndir af Eyvindi á góðum kjörum