Helsta vitleysan

Fórnarlamb galdra

Jóhannes Jóhannes Jóhannesson var áður aðalprjónarinn. Nú er hann bara sorglegur.Jóhannes Jóhannes Jóhannesson hefur hrökklast frá völdum sem formaður saumaklúbbs Raufarhafnar - Saumahöfn, eins og hópurinn kallar sig. Jóhannes Jóhannes vill meina að hér séu galdrar að verki, en eftir aðgerðir Ásatrúarmanna gegn breskum og hollenskum stjórnvöldum hafa íslenskir galdrakarlar heldur betur sótt í sig veðrið.

"Ég sat bara í mestu makindum og var að bródera mynd af Gunnari Birgissyni á gallabuxurnar mínar, þegar ég hrökklaðist skyndilega frá völdum," segir Jóhannes Jóhannes, sem segir farir sínar síður en svo sléttar. "Ég ætlaði alls ekki að afsala mér formennskunni. Síður en svo," bætir Jóhannes Jóhannes við, súr í bragði.

Galdrasérfræðingar sem fréttastofan hefur rætt við segja að hér sé greinilega um hrökklgaldur að ræða, en hann var býsna algengur á árum áður. Hann hefur legið í dvala um nokkra hríð, en virðist vera að sækja í sig veðrið að nýju. Vonlaust er að segja til um hver framdi galdurinn, en Jóhannes Jóhannes á töluvert marga pólitíska andstæðinga.

"Ég er satt að segja töluvert foj yfir þessu," segir Jóhannes Jóhannes að lokum. "Það verður að setja einhverjar reglur um svona hókuspókusdótarí. Það gengur ekki að menn láti mann bara hrökklast hingað og þangað í tíma og ótíma. Maður verður svo slæmur í lærunum."

Neðsta vitleysan

Vottaðir vitleysingar

Bóka vitleysinga

Hægt er að fá þá Eyvind Karlsson og Þórhall Þórhallsson sem veislustjóra eða sem uppistandara við öll tækifæri (nema barnaafmæli) svo sem árshátíðir, skemmtikvöld hjá skólum eða fyrirtækjum og margt fleira. Hægt er að bóka þá saman eða í sitthvoru lagi. Einnig hafa þeir verið með uppistandsnámskeið í nokkrum framhaldsskólum við góðar undirtektir.

Til að bóka vitleysingana er hægt að senda e-mail á vitleysan(hjá)vitleysa.is


p.s erum einnig með nokkrar erótískar passamyndir af Eyvindi á góðum kjörum