Helsta vitleysan

Fréttir

Fagnar kynjakvóta

Stjórnarformaðurinn reynir að sannfæra hnátu nokkra um að taka sæti í stjórn félagsins.

Stjórnarformaður Penis Group, eina fyrirtækisins á Íslandi sem sérhæfir sig í klámi, erótísku nuddi og almennri niðurlægingu kvenna, fagnar því að Alþingi hafi nýverið sett lög um kynjakvóta í stjórnum hlutafélaga. "Það er frábært að fá nokkrar pjöllur í stjórnina," sagði stjórnarformaðurinn glaður í bragði, en hann mætti til viðtalsins nakinn, með spora og kúrekahatt. Það var fögur sjón.

"Við höfum um árabil verið eintómir karlar í þessari stjórn," segir stjórnarformaðurinn, "og þetta er að verða full gróft pulsupartý. Ef við fáum nokkrar druslur þarna inn verða stórnarfundirnir klárlega töluvert líflegri."

Á næstu dögum verður haldinn aðalfundur, þar sem kosin verður ný stjórn. Enn hefur engin kona boðið sig fram í embætti, en stjórnarformaðurinn hefur litlar áhyggjur af því. "Ef allt klikkar ráðum við bara inn einhverjar gellur af götunni. Það er ekki eins og þær þurfi að uppfylla einhverjar hæfniskröfur - þetta eru nú bara pjásur."

Ætlar að segja JÁ

Kjósandinn kýs að fara huldu höfði, en við náðum mynd af honum á leið að heimsækja mömmu sína.

Fréttastofan náði tali af eina Íslendingnum sem ætlar að kjósa með IceSave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um málið. Hann vill ekki láta nafn síns getið, en hann heitir Sigurvin Ragnarsson og býr á Ásvallagötu 48, 101 Reykjavík.

Kjósandinn segist vera hundleiður á þessari neikvæðni í Íslendingum.

"Það er alveg sama hvað er lagt til, allir segja bara: Nei! Nei! Ég var bara orðinn leiður á þessu, þannig að ég ákvað að vera bara jákvæður. Þess vegna segi ég já." Kjósandinn, sem kýs að fara huldu höfði vegna neikvæðni samborgara sinna, segist gera sér grein fyrir því að þetta sé ekki vinsæl afstaða. "Já, fólk er alveg hart á því að segja nei í kosningunni, og ég hef orðið fyrir nokkru aðkasti á Facebook út af þessu," segir kjósandinn, sem stofnaði hóp til stuðnings Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem hann einn er meðlimur í.

"Ég skil bara ekki af hverju fólk þarf að vera svona neikvætt alltaf. Hvað myndi það eiginlega gera til að segja aðeins oftar Já?"

Aðspurður sagðist kjósandinn ekki hafa hugmynd um hvað þetta Icesave er. 

Setti klósettsetuna niður

Sá óheyrði atburður átti sér stað þann 5 janúar 2010 að Samúel Bjarnason rafeindafræðingur setti klósettsetuna niður eftir að hafa farið á klósettið.

"Ég veit eiginlega ekki hvað kom yfir mig, ég var bara að pissa og þegar ég var búinn þá rakst ég í setuna þannig að hún datt niður og lokaðist. Þá mundi ég eftir hvað hún Lára konan mín er búin að kvarta yfir öll þessi ár þannig að ég lét hana bara vera lokaða áfram. Ég verð samt að viðurkenna að þetta var svolítið skrýtin tilfinning, en ég lét mig hafa það" sagði Samúel við fréttastofu Vitleysu.is

Eftir þetta ákvað Samúel að stofna hóp á facebook sem kallast "Ég er karlmaður og ég set klósettsetuna niður". Þegar þetta er skrifað þá er Samúel eini meðlimurinn í hópnum.
 
 
Hér sést að setan er komin niður

Fórnarlamb galdra

Jóhannes Jóhannes Jóhannesson var áður aðalprjónarinn. Nú er hann bara sorglegur.Jóhannes Jóhannes Jóhannesson hefur hrökklast frá völdum sem formaður saumaklúbbs Raufarhafnar - Saumahöfn, eins og hópurinn kallar sig. Jóhannes Jóhannes vill meina að hér séu galdrar að verki, en eftir aðgerðir Ásatrúarmanna gegn breskum og hollenskum stjórnvöldum hafa íslenskir galdrakarlar heldur betur sótt í sig veðrið.

"Ég sat bara í mestu makindum og var að bródera mynd af Gunnari Birgissyni á gallabuxurnar mínar, þegar ég hrökklaðist skyndilega frá völdum," segir Jóhannes Jóhannes, sem segir farir sínar síður en svo sléttar. "Ég ætlaði alls ekki að afsala mér formennskunni. Síður en svo," bætir Jóhannes Jóhannes við, súr í bragði.

Galdrasérfræðingar sem fréttastofan hefur rætt við segja að hér sé greinilega um hrökklgaldur að ræða, en hann var býsna algengur á árum áður. Hann hefur legið í dvala um nokkra hríð, en virðist vera að sækja í sig veðrið að nýju. Vonlaust er að segja til um hver framdi galdurinn, en Jóhannes Jóhannes á töluvert marga pólitíska andstæðinga.

"Ég er satt að segja töluvert foj yfir þessu," segir Jóhannes Jóhannes að lokum. "Það verður að setja einhverjar reglur um svona hókuspókusdótarí. Það gengur ekki að menn láti mann bara hrökklast hingað og þangað í tíma og ótíma. Maður verður svo slæmur í lærunum."

Óvenju ljótum dreng lógað

Sá hörmulegi atburður átti sér stað í Kattholti fyrir um mánuði síðan að Margeiri Atlasyni, óvenju ljótum dreng, var lógað í Kattholti.

" Við héldum að þetta væri stökkbreyttur villiköttur þegar við sáum hann fyrst, hann hvæsti á okkur og allt" segir Geirþrúður Hvanndal yfirlógari á Kattholti.

"Þannig er mál með vexti að hann Marri okkar þjáðist af óvenju miklum hárvexti, en þetta með að hann hafi hvæst er bara bull. Hann var með asma" segir móðir drengsins sem vill ekki láta nafngreina sig vegna þess að hún er með svo asnalegt nafn. Við hér á fréttastofunni giskum á að það nafn sé Unnur. Hahaha...Unnur.

Kattholt hefur beðið fólk sem er óvenju loðið og ljótt um að vera vel merkt sem manneskjur því það geti komið í veg fyrir að svona lagað komi fyrir aftur.


Óvenju ljótur drengur











Fleiri greinar...

Síða 1 af 2

Fyrsta
Fyrri
1
Neðsta vitleysan

Vottaðir vitleysingar

Bóka vitleysinga

Hægt er að fá þá Eyvind Karlsson og Þórhall Þórhallsson sem veislustjóra eða sem uppistandara við öll tækifæri (nema barnaafmæli) svo sem árshátíðir, skemmtikvöld hjá skólum eða fyrirtækjum og margt fleira. Hægt er að bóka þá saman eða í sitthvoru lagi. Einnig hafa þeir verið með uppistandsnámskeið í nokkrum framhaldsskólum við góðar undirtektir.

Til að bóka vitleysingana er hægt að senda e-mail á vitleysan(hjá)vitleysa.is


p.s erum einnig með nokkrar erótískar passamyndir af Eyvindi á góðum kjörum